Original North er í samstarfi við Camp Boutique sem rekur einnig tjaldbúðir á Loftsstöðum í Flóahreppi á Suðurlandi.
Tjöldin eru vel staðsett á bökkum Skjálfandafljóts þar sem auðvelt er að njóta kyrrðarinnar og fuglalífsins. Tjöldin eru hönnuð sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Þau eru vel útbúin með húsgögnum, uppábúnum rúmum, hiturum, hitateppi í rúmum og háhraða Wi-Fi.
Hægt er að panta gistingu í tveggja manna tjaldi og fjögra manna fjölskyldutjaldi.
Miðað er við að hægt sé að innrita sig milli kl. 16:00-21:00 og að útritun sé fyrir kl. 12:00 daginn eftir.