EINSTÖK

NÁTTÚRUUPPLIFUN

BÓKA

Lúxus tjöld

Original North er í samstarfi við Camp Boutique sem rekur einnig tjaldbúðir á Loftsstöðum í Flóahreppi á Suðurlandi. 


Tjöldin eru vel staðsett á bökkum Skjálfandafljóts þar sem auðvelt er að njóta kyrrðarinnar og fuglalífsins. Tjöldin eru hönnuð sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Þau eru vel útbúin með húsgögnum, uppábúnum rúmum, hiturum, hitateppi í rúmum og háhraða Wi-Fi. 


Hægt er að panta gistingu í tveggja manna tjaldi og fjögra manna fjölskyldutjaldi. 


Miðað er við að hægt sé að innrita sig milli kl. 16:00-21:00 og að útritun sé fyrir kl. 12:00 daginn eftir. 

Nánar

Tveggja manna lúxustjald.


Tveggja manna tjaldið er 23fm að stærð og hefur hvert tjald sinn einstaka stíl þar sem ekkert þeirra er eins innréttað. Í tjaldinu er stórt uppábúið rúm (180 cm) með hitateppum, hitara og húsgögnum. 


Ef óskað er eftir því að hafa rúmin aðskilin þá endilega látið vita við bókun. 


Bóka

Fjölskyldutjald


Fjölskyldutjaldið er 45fm og vel búið húsgögnum. Þar er svefnpláss fyrir fjóra. Stórt rúm (180 cm) og stór svefnsófi sem rúmar tvo fullorðna einstaklinga. Hitateppi eru í rúmum og hitunarbúnaður til að hita upp tjaldið.





Bóka
  • Share by: