Svæðið


Staðsetningin tjaldana á bökkum Skjálfandafljóts er einstök en þar er auðvelt að njóta kyrrðarinnar og fuglalífsins. 

Tjaldbúðirnar er miðsvæðis við allar helstu náttúruperlur á Norðurlandi. Við erum staðsett innan Demantshringsins vinsæla og við Norðurstrandaleiðina (Arctic cost way) sem var valin á topp 10 lista yfir þá áfangastaði í Evrópu sem best er að heimsækja, að mati Lonely Planet.

Stutt er til Húsavíkur (23km) í hvalaskoðun og í Sjóböðin. Einnig er stutt í Mývatnssveit og Jarðböðin. Akureyri, höfuðstaður Norðurlands er svo í 40 mín. akstursfjarlægð.  

Það er því upplagt að dvelja í nokkrar nætur miðsvæðis í lúxustjaldi og fara í skemmtilegar dagsferðir og kanna náttúruperlur Norðurlands.